Vantaði taglið til að ná fram sigri

Liverpool náði að gera einn eitt jafnteflið gegn "lakara" liði á pappírunum.

Liverpool hefði átt að vera búinn að gera út um þennan leik í fyrri hálfleik en svo varð ekki. Caroll kom alltof seint inná og það lítur út fyrir að  Dalglish sé eitthvað ragur við það að láta hann spila 90 mín , en svo er spurningin er hann í formi til þess? Honum finnst alls ekkert leiðinlegt að fá sér t.d. einn Fosters með vinunum. 

En þetta eru samt leikir sem að Liverpool verða að fara að vinna ef þeir vilja ná fram markmiði sínu sem er að snúa aftur í topp 4 sætin. Fyrir mér að þá vantaði bara einhvern með tagl inná vellinum. Carroll var næstum allan tímann á bekknum að segja brandara , Kyrgiakos var í Þýskalandi eftir frjálsa sölu og Voronin var með húfu og í úlpu að horfa á leikinn í sjónvarpinu heima hjá sér í Moskvu.

Mér fannst bara skemmtilegt að taka það fram að ef þú ert með tagl að þá er um það bil 90% líkur á því að þú endir í æfingarhóp Liverpool. Færð kannski beint að spila en þú ert í hópnum.

Leiðinleg úrslit því miður um helgina þar sem Grant Holt náði að jafna fyrir Norwich. 

3 points at Anfield put on Holt(d) by the Canaries.


Æfingarleikur við Rangers í kvöld

Það er nú ekki oft sem að ensku úrvalsdeildarliðin spila æfingarleik í miðri viku en þar sem að Liverpool ákvað á seinastu tímabili að ganga illa mest allt tímabilið og komast ekki í Evrópukeppnina að þá var þessi ákvörðun tekin.

Þeir mæta Rangers sem er á toppi Skosku deildarinnar og er sýnd veiði en ekki gefin en samt sem áður mundi ég vilja sjá allavega 0-2 sigur.

Verður skemmtileg ferð fyrir Dalglish að heimsækja Skotland , þar sem að fleiri skilja hann þegar hann talar án þess að þurfa smá tíma til að melta hvað hann sagði.

Hvernig mundi maður stilla upp liðinu??

Held ég mundi gefa öllum þeim sem hafa spilað minna á tímabilinu tækfæri , t.d. Maxi,Coates,Robinson,Flanagan og jafnvel láta Gerrard spila 45 mín. Carroll mundi pottþétt spila og Bellamy.Wilson mundi einnig fá tækifæri til að spila á móti uppeldisliðinu en ég mundi bara leyfa Aurelio að vera eftir heima og jafnvel bara leyfa honum að vera heima hjá sér í Brasilíu.

En samkvæmt Dalglish að þá ætlar hann að mæta með nokkuð sterkt lið sem er líka ágætis mál.

Verður vonandi ágætis skemmtun og vonandi góður undirbúningar fyrir leikinn um helgina gegn Norwich.


Höfundur

Kristján Rúnar Sigurðsson
Kristján Rúnar Sigurðsson
Áhugamaður um jójó knattspyrnuliðið Liverpool sem er frá Englandi.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband